Ég hef verið þráspurður hvort ég ætli í framboð til Alþingis síðan ég byrjaði að starfa með Pírötum. Því hef ég alltaf svarað játandi. Eða öllu heldur að eitthvað mikið þurfi að ganga á til að ég geri það ekki.
Það má því líta á þessa færslu mína sem opinbera yfirlýsingu mína um að ég mun bjóða mig fram í prófkjöri Pírata í haust. Í kjölfar prófkjörs mun ég vera virkur þátttakandi í kosningabaráttu Pírata vegna Alþingiskosninga á næsta ári. Ég mun aðstoða og hjálpa til eins og ég get óháð hvernig mitt persónulega framboð gengur.
Það er ekki endanlega ljóst hvernig prófkjörum Pírata verður háttað. Þar sem ég bý í Reykjavík og starfa með Pírötum í Reykjavík þá geri ég ráð fyrir að bjóða mig fram í borginni. Ég stefni á að vera sem efst á lista, helst í 1-3 sæti. Píratar setja mig að sjálfsögðu í það sæti sem þeim hugnast að ég sé í.
Af hverju framboð fyrir Pírata?
Ég ákvað að starfa með Pírötum af ýmsum ástæðum. Helsta ástæðan er að fyrir mér er líklegast að Píratar komi alvöru breytingum á stjórnkerfi landsins í gegn.
Pírötum er einnig umhugað um að rödd fólksins fái að heyrast. Hvergi hef ég séð jafn greiðan aðgang að stefnumótun eins og hjá Pírötum.
Fólk er boðið velkomið til starfa með Pírötum. Það er gert óháð uppruna, fyrri sögu eða sértækum persónulegum skoðunum. Það er í raun einungis farið fram á að fólk sé tilbúið að starfa innan þess lýðræðislega kerfis sem Píratar hafa búið til.
Áherslumál
Ég tel að ég muni gagnast Pírötum og þjóðinni mun betur inni á Alþingi en utan. Ég legg mikla áherslu á þau tvö mál sem Píratar ályktuðu að skyldu sett á oddinn á aðalfundi flokksins 2015. Þ.e. að samþykkja skuli nýja stjórnarskrá þar sem tillögur stjórnlagaráðs verði lagðar til grundvallar og að haldin verði bindandi þjóðaratkvæðagreiðsla um hvort halda skuli ESB samningaviðræðum áfram.
Mín aðaláherslumál eru þó bætt velferðar- og heilbrigðiskerfi. Hvernig nákvæmlega mín aðkoma verður að umbótum þar fer eftir hvernig flokkurinn ákveður að tækla stjórnarskrár og ESB málin.
Ég fer betur yfir þessi mál og mínar áherslur í seinni færslum.