Category: Lífeyrisþegar

  • Ein versta birtingarmynd ósanngirni og mannvonsku

    Allir flokkar á þingi hafa talað um mikilvægi þess að afnema krónu á móti krónu skerðinguna hjá öryrkjum. Það er ekki að ástæðulausu. Þessi skerðing er ein versta birtingarmynd ósanngirni og mannvonsku í garð lífeyrisþega sem stjórnvöldum hefur nokkurn tímann dottið í hug að koma á og það í kerfi sem er vel þekkt fyrir…

  • Er örorka sýnileg eða ósýnileg?

    Flestir sem þekkja mig eða hafa fylgst með pólitískum störfum mínum vita að ég er öryrki. Margir vita samt ekki af hverju ég er öryrki. Ósýnileg örorka Mitt örorkumat er vegna þunglyndis- og kvíðaröskunar. Ég hef alveg verið opinskár með það og skammast mín ekki fyrir það en það er samt ekki endilega það fyrsta…

  • Afnám krónu á móti krónu skerðingar kostar minna en margur heldur

    Í gærmorgun (14. nóv.) voru Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir og Anna Kolbrún Árnadóttir gestir í þættinum Í bítið á Bylgjunni. Þar var aðallega til umræðu biðlistar í heilbrigðiskerfinu. Í lok viðtalsins, nánar tiltekið á um mínútu 16:30 í þessari upptöku, berst talið að tillögu meirihluta fjárlaganefndar um lækkun á áður boðuðu hækkuðu framlagi til málefna öryrkja. Hækkun sem var ætlað að…

  • Frumvarp um afnám krónu á móti krónu skerðingar

    Það var ærin ástæða fyrir að ég skrifaði fyrstu drög að þessu frumvarpi um afnám krónu á móti krónu skerðingar og bað þingflokk Pírata að fullvinna og leggja það fram. Halldóra Mogensen​ gerði það með glöðu geði fyrir hönd flokksins þar sem allir þingmenn hans voru meðflutningsfólk. Í fyrstu tilraun var málið svæft í nefnd…

  • Opið bréf til Steinunnar Þóru, þingkonu Vinstri Grænna

    Sæl Steinunn Þóra​ Getur þú útskýrt fyrir mér ástæður stefnubreytingar Vinstrihreyfingin – grænt framboð​ hvað varðar starfsgetumat? Árið 2016 sast þú í nefnd um heildarendurskoðun almannatryggingakerfisins fyrir hönd VG. Þar skrifaðir þú, ásamt öllum fulltrúum þáverandi stjórnarandstöðu og fulltrúar Öryrkjabandalag Íslands​, undir sérálit þar sem þáverandi hugmyndum um starfsgetumat var í raun hafnað. Formlega voru…

  • Opið bréf til Páls Magnússonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins

    Þetta bréf var ritað sem viðbrögð við þessari grein á Eyjunni: Fleiri verða öryrkjar en þeir sem fara á vinnumarkaðinn – „Þetta er grafalvarleg þróun,“ segir Páll Magnússon Sæll Páll Magnússon Hvernig væri að gera meira heldur en að vekja athygli á þessari þróun? Hvernig væri að leggja til aðgerðir, raunverulegar aðgerðir til að stemma stigum…

  • Um hækkun almannatrygginga skv. fjárlagafrumvarpi 2018

    Skv. fjárlagafrumvarpi fyrir 2018 er gert ráð fyrir að almenn hækkun greiðslna almannatrygginga verði 4,7%. Þá er gert ráð fyrir sérstakri hækkun heimilisuppbótar til viðbótar til að þeir lífeyrisþegar sem búa einir nái 300 þús. kr. framfærslu á mánuði (fyrir skatta að venju), í samræmi við loforð síðustu ríksstjórnar um að lágmarksframfærsla lífeyrisþega væri jöfn…

  • Niðurgreiddar tannlækningar

    Sumir hafa gagnrýnt nýsamþykkta stefnu Pírata um niðurgreiddar tannlækningar. M.a. með þeim rökum að þeir sem mest þurfi aðstoð vegna þessa mjög svo dýru þjónustu fái hana nú þegar niðurgreidda. Þ.e.a.s. lífeyrisþegar. 23 þúsund greiddu of mikið í tannlæknakostnað – Vísirhttp://www.visir.is/23-thusund-greiddu-of-mikid-i-tannlaeknakostnad/article/2016160829871Rúmlega 23 þúsund aldraðir og öryrkjar greiddu rúmlega tvöfalt meira í tannlæknakostnað í fyrra en…